Í gær, 2. júní hófst Frumkvöðlaflokkur á Hólavatni. Í flokknum eru börn af báðum kynjum á aldrinum 7-8 ára. Flokkurinn stendur yfir í 3 daga, dagana 2. – 4. júní, og er sérstaklega ætlaður börnum sem ekki hafa áður dvalist í sumarbúðum.
Skemmtilegur og fjörugur hópur barna er í Frumkvöðlaflokknum, og á fyrsta degi flokksins tóku þau sér geysimargt fyrir hendur, að sögn Jóhanns Þorsteinssonar forstöðumanns. Farið var í bátaferðir, útileiki, fótbolta, keppt í stígvélasparki og rólustökki og leikrit undirbúin fyrir kvöldvöku. Foreldrum barnanna er svo boðið í heimsókn síðasta daginn í flokknum, og eru börnin orðin full eftirvæntingar að taka á móti þeim og sýna þeim Hólavatn.
Myndir af fyrsta degi flokksins er að finna hér á eftirfarandi slóð:
http://www.kfum.is/nc/myndir/?g2_itemId=123911
Frumkvöðlaflokkurinn á Hólavatni er nú haldinn í þriðja sinn. Nú í ár er fullbókað í flokkinn í fyrsta sinn. Það er því ljóst að orðspor flokksins hefur borist víða.
Starfsfólk KFUM og KFUK óskar börnunum í sumarbúðum félagsins góðrar áframhaldandi skemmtunar!