Í Eyjafirði, einum fallegasta dal landsins er Hólavatn, einar af fimm sumarbúðum KFUM og KFUK á Íslandi. Eyjafjörður er á miðju norðurlandi og er einn af lengstu dölum landsins. Hólavatn er staðsett innarlega í firðinum, 42 kílómetra frá Akureyri.

Nokkrar hagnýtar upplýsingar

1. Farangur
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:
Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, betri fatnaður, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem og Nýja testamenti. Ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðunum.

2. Fatamerking
Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist. Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir
Hægt er að vitja óskilamuna í KFUM og KFUK í Sunnuhlíð, Akureyri. Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum.

4. Lyf/læknisvottorð
Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv.“
Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan.

5. Brottför – heimkoma
Í 2.-8. flokk er farið með rútu frá verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri  kl. 9:00 og heimkoma á sama stað kl. 15:00.

Í Frumkvöðlaflokki, 7.-9. júní mun rútan leggja að stað frá Hólavatni kl 13:00 á laugardeginum.

6. Athugið
Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda. Síma og önnur dýr tæki er einnig óheimilt að taka með.

7. Myndbirting
KFUM og KFUK á Íslandi áskilur sér rétt til notkunar á myndum af þátttakendum í starfi og viðburðum á vegum félagsins. Félagið mun hafa að leiðarljósi að gæta varúðar og nærgætni við myndbirtingar í samræmi við leiðbeinandi álit persónuverndar.

8. Fyrirspurnir
Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 463 1271 milli kl. 11 og 12 og ræða við starfsfólk. Fréttir og myndir úr sumarbúðunum verða birtar hér á síðunni og á Fésbókarsíðu Hólavatns.