Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK fyrir sumarið 2011 gengur mjög vel og er í fullum gangi. Nú hafa yfir 1000 börn verið skráð til dvalar á komandi sumri í Vatnaskógi, Ölveri, Hólavatni, Kaldárseli og Vindáshlíð.

Fullt er orðið í nokkra dvalarflokka, og byrjað er að skrá á biðlista fyrir þá.

Hægt er að ganga frá skráningu gegnum internetið,
HÉR, eða hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík í síma 588-8899.

Ljóst er að skemmtilegt sumar er framundan í starfsemi KFUM og KFUK. Nánari upplýsingar um sumarbúðir félagsins og dvalarflokka þeirra er að finna
HÉR.

Einnig er velkomið að hafa samband við Þjónustumiðstöðina á Holtavegi alla virka daga frá kl. 9-17 ef frekari fyrirspurnir vakna.